Hellvar og sunna í Suðsuðvestur
Sýningin Hellvar - ekki helvar opnar laugardaginn 17. desember í Suðsuðvestur kl. 15:00.
Hellvar er lítil hugmynd sem óx og óx og er nú orðin að veruleika. Upphaflega varð Hellvar til þegar Heiða og Elvar rugluðu saman reitum sínum og komu fram á Innipúkanum 2003, þá í Iðnó, en nafnið var þá skrifað á plaggöt með einu elli, Helvar, og sú prentvilla hefur dulítið fylgt hljómsveitinni síðan. Þarna í Tjarnarbíói voru skötuhjúin að spila órafmagnað á gítara og syngja hugljúft með, og svo varð ekkert meira úr því, en nafnið var til. Skömmu síðar bað Berglind Ágústsdóttir Hellvar um að semja með sér lög, og urðu þá til slagarar eins og Kúrekastelpan og Gangsterrappari. Hellvar fluttist síðan til Berlínar haustið 2004 og í stað þess að leggja stíft stund á Heimspekinám eins og til stóð, lögðu þau stund á tónlistarsköpun. Í Berlín fann Hellvar sitt sanna sjálf, sem flokkast undir rafrokk með popp- og pönkáhrifum. Eflaust hefur staðsetningin Berlín fyllt Hellvar áhrifum, því það festist við Hellvar að nota trommuheila eins og þýskir frumkvöðlar eins og Kraftwerk og D.A.F. gerðu gjarnan. Er heim til Íslands var komið eftir ársdvöl í Berlín héldu Hellvar nokkra tónleika, og spiluðu þá meðal annars á Innipúkanum 2005, og þar var um allt annan Hellvar að ræða en þann fyrri, því Elvar og Heiða voru nú sjóaðir rafrokkarar þar sem þau voru iðin við að spila úti í Berlín. Samt voru þau ekki fullkomlega ánægð með hljóminn og fengu því til liðs við sig Flosa Þorgeirsson á bassa, og þannig spiluðu þau til dæmis á Iceland Airwaves 2005.
Þau hafa nú lagt í það skemmtilega verkefni að halda svokallaða „opna vinnustofu“, en þau ætla að fylla sýningarýmið SSV í Keflavík af græjum og semja þar splunkunýtt efni, eins og andinn ber þeim í brjóst á þessum nýja og framandi stað. Eina reglan sem þau ganga inn með er að ekkert má nota af hugmyndum sem nú þegar eru fæddar en ekki er búið að vinna úr. Verkið verður því innsetning um leið og um gerð hljómdisks verður að ræða, og ekkert er vitað um útkomuna, (sjálfan diskinn) fyrr en ferlinu, (sem er sýningin sjálf), lýkur.
Sýningin hefur fengið heitið HELLVAR -EKKI HELVAR og opnar laugardaginn 17.desember, klukkan 15:00. Hún verður opin allar helgar að deginum til, og 2 virk kvöld í viku, en síðasti dagur sýningarinnar er föstudagurinn 6. janúar þegar HELLVAR heldur lokapartý og býður fólki að kaupa verkið á geisladiski. Myndlistarkonan Sunna Guðmundsdóttir ætlar að setja upp eigin verk á meðan á sýningu stendur. Suðsuðvestur er á Hafnargötu 22 í Keflavík.
Eftirfarandi dagar eru ákveðnir opnunardagar, en ef við þá bætist er hægt að fara inná sudsudvestur.is þar sem þær birtast:
Laugardagur 17.12.2005 – Opnun klukkan 15:00-fram á kvöld
Sunnudagur 18.12.2005 – 13:00-fram á kvöld
Þriðjudagur 20.12.2005 – 19:00-22:00
Laugardagur 24.12.2005 – 10:00-13:00
Miðvikudagur 28.12.2005 – 19:00-22:00
Föstudagur 30.12.2005 – 16:00-fram á kvöld (seint)
Laugardagur 31.12.2005 – 13:00-17:00
Sunnudagur 01.01.2006 – 15:00-fram á kvöld
Þriðjudagur 03.01.2006 – 19:00-22:00
Fimmtudagur 05.01.2006 – 19:00-22:00
Föstudagur 06.01.2006 – LOKAHÓF sem hefst klukkan 18:00