Hellavernd á Reykjanesi

Á vefsíðunni ferlir.is kemur fram að nota átti tækifærið til að skoða hellinn og ræða um leið ástand og aðgerðir við hraunhella í fólkvanginum. Árni var einn þeirra, sem fyrstur kannaði Leiðarenda árið 1991. Þá var hellirinn algerlega ósnortinn, en þótt ekki séu liðin mörg ár hafa ýmsar dásemdir hans verið eyðilagðar og jafnvel fjarlægðar, s.s. dropasteinar.
Fyrir utan það hefur verið þreifað á viðkvæmum bakteríumyndunum á veggjum, en Árni segir að þrátt fyrir það sé margt að sjá í hellinum fyrir áhugafólk. Hefur hann því lagt fram drög að áætlunum til að draga úr skemmdum á hellinum um leið og aðgengi verður bætt, en fyrirhugað er að ráðast í þær framkvæmdir í vetur.
Mynd: Ó.S.Á/ www.ferlir.is