Helgin mín „Kíki kannski á brúðkaupið“
Ólína Ýr Björnsdóttir er 19 ára Keflvíkingur í húð og hár. Ólína hefur rosalega gaman af því að vera til, er mikið fyrir það að brosa og hlæja. Hún segist vera algjör félagsvera sem verður oftast að vera innan um mikið af fólki og nýtur þess að lifa lífinu lifandi. Hún hefur gaman af því að ferðast og vera með vinum sínum. Ólínu finnst ekki leiðinlegt að versla föt og heldur því fram að eitt skópar á mánuði komi skapinu í lag.
Ólína tók sér nýverið pásu frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og byrjaði í vinnu við þrif á flugvélum hjá IGS. Áður fyrr spilaði hún fótbolta með Keflavík í tæp átta ár en hætti svo og sá mikið eftir því. Nýlega hefur hún þó tekið skóna af hillunni og er aftur byrjuð að mæta á æfingar og ætlar sér að sjá svo til hvernig framhaldið verður. Ólína býr ennþá hjá foreldrum sínum og í nánustu framtíð langar hana jafnvel að fara í nám sem tengist förðun, en hún hefur mikinn áhuga á flestu sem viðkemur förðun. Þessa dagana telur hún spennt niður dagana því í maí er förinni heitið til Tyrklands með stórum vinahóp. Auðvitað hlakkar hana svo mikið til sumarsins. Í sumar ætlar hún að nýta frítímann sinn vel í að ferðast, fara í útilegur og allra helst að eyða tíma með vinum sínum.
Næsta helgi er fríhelgi hjá Ólínu og hún ætlar að njóta sín og hafa það náðugt.
Á föstudeginum fer Ólína til tannlæknis í Reykjavík og hver veit nema hún kíki á konunglega brúðkaupið sem er á allra vörum þessa dagana. Um kvöldið verður svo kannski kíkt á rúntinn og slakað á.
Á laugardeginum ætlar hún sér að sofa út og kíkja svo á fótboltaleik stelpnanna í Keflavík sem taka á móti HK/Víking í Reykjaneshöllinni. Um kvöldið er stefnan tekin á höfuðborgina í bíó en ekkert ákveðið með myndina sem á að sjá.
Sunnudagar fara gjarnan í það að liggja með tærnar uppí loftið hjá Ólínu eins og hjá svo mörgum. Svo borðar fjölskyldan eitthvað gott saman og hefur það notalegt.
[email protected]