Helgin mín - „Kosningaáróður fyrir Skrökvu“
Ingibjörg Sesselja Björnsdóttir er 21 árs Keflavíkurmær. Hún er í Háskóla Íslands að læra stjórnmálafræði og býr í Reykjavík. Hún starfar samhliða námi á Tapas barnum við Vesturgötu og á nýjum ítölskum veitingarstað sem heitir Uno. Þessa dagana stendur Ingibjörg í kosningabaráttu hjá Skrökvu í stúdentakosningum Háskólans en hún er í 11. sæti listans. Kosningar fara fram næstu helgi og því helgin meira og minna undirlögð af kosningar umstangi hjá Ingibjörgu. Hún verður einnig að vinna um helgina en gefur sér smá tíma til að kíkja á lífið.
Vinnuhelgi og kosningar
„Það verður mikið að gera um helgina hjá mér, þetta er vinnuhelgi og líka síðasta helgin fyrir kosningarnar upp í háskóla. Það verður því lítið annað sem kemst að þessa helgina, því miður.
Ég mun byrja helgina á því að mæta upp á Háskólatorg snemma á föstudaginn og vera með kosningaráróður fyrir Skrökvu. Þar ætlum við skrökvuliðar að reyna að kaupa atkvæði nemanda með ýmsu góðgæti. Eftir það er vinna hjá mér á Uno og verð ég þar fram eftir kvöldi.“
Brunch og bjór á laugardeginum
„Á laugardaginn er stefnan að hitta nokkrar vel valdar dömur í brunch á laugaveginum, og síðan er það aftur vinna á Uno. Eftir vinnu kíki ég örruglega aðeins niður í bæ og fæ mér eins og einn bjór.“
Bakar fyrir kosningarnar
„Á sunnudeginum mun ég vonandi fá að sofa út og síðan ætlum við að hittast nokkrar stelpur úr Skrökvu & baka kökur og annað góðgæti til að nota í kosningarbaráttunni. Eftir það vonast ég til að komast heim til mömmu í Keflavíkina og fá gott að borða. Skólabækurnar verða teknar upp um helgina þegar tími gefst.“
Myndir: efri mynd - Ingibjörg ásamt Raul Meireles leikmanni Liverpool en Ingibjörg er einmitt mikill stuðningsmaður þess liðs. Neðri mynd - Kosningarmynd Ingibjargar.