Helgin í ár mun toppa allar hinar
Júlía Scheving Steindórsdóttir er körfuboltakona í Njarðvík og nemandi við Verzlunarskólann sem fílar Þjóðhátíð í botn.
Hvað á að gera um verslunarmannahelgina og hvert á að fara?
Ég fer á Þjóðhátíð í Eyjum.
Hvað finnst þér einkenna góða verslunarmannahelgi og finnst þér eitthvað vera ómissandi um þessa helgi?
Aðallega að vera með uppáhalds fólkinu sínu í góðri stemmingu, svo skemmir ekki ef veðrið er gott. Mér finnst ómissandi að fara á Þjóðhátíð, það er alltaf snilld í Eyjum.
Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér?
Það eru margar skemmtilegar en engin ein sem stendur sérstaklega upp úr, ég held að helgin í ár muni toppa allar hingað til.