Helga Lára með sýningu
Myndlistakonan Helga Lára Haraldsdóttir sýnir verk sín þessa dagana á Icelandair-Hótelinu í Reykjanesbæ. Verk Helgu verða þar til sýnis næstu misseri. Helga Lára er kennari við Akurskóla en hún útskrifaðist frá City and Guilds of London listaskólanum og síðar frá Chelsea College of Art and Design í London með BA gráðu í Public Art. Hún lauk síðar meistaraprófi í Art in Architecture frá Háskólanum East London 1999. Helga hefur auk þess lokið kennsluréttindum í listum og hönnun frá Háskólanum í Greenwich, London.
Helga hefur tekið þátt í fjölda samsýninga á Englandi og sýnt á einkasýningum. Hún rak í nokkur ár listagallerý í London. Helga starfar nú að list sinni, auk þess sem hún hefur sinnt myndlistarkennslu í grunn- og framhaldsskólum. Í myndlist sinni hefur Helga lagt áherslu á gerð skúlptúra, lágmynda og málverka.