Þriðjudagur 7. maí 2019 kl. 06:00
Héldu tombólu í Vogum og styrktu Rauða krossinn
Þessar kátu Vogastúlkur nýttu blíðviðrið á annan í páskum til að halda tombólu fyrir framan N1 í Vogum og söfnuðu 1.692 kr. sem þær færðu Rauða krossinum. Þær voru kátar með árangurinn og sögðu að það væri upplagt að nota góðu dagana í tombóluhald.