Heimasæta með landnámshænuunga
Nú eru komnir þrír tístandi landnámshænuungar í Landnámsdýragarðinn á Fitjum í Reykjanesbæ. Á meðfylgjandi mynd er Júlía, heimasæta í dýragarðinum, með einn ungann. Í garðinum eru einnig heimalingar sem drekka mjólk úr pela og kiðlingarnir sem við sögðum frá á dögunum eru á vappi innan um börnin.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson