Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Heilsuefling á Suðurnesjum: Glæsilegt námsskeið í kvöld
Fimmtudagur 15. febrúar 2007 kl. 15:34

Heilsuefling á Suðurnesjum: Glæsilegt námsskeið í kvöld

Átaksverkefni Hjartaheilla, sveitarfélaganna, verkalýðsfélaga, Íþróttaakademíunnar, Inpro og fleiri aðila fer vel af stað.

Að sögn Hjálmars Árnasonar, formanns Hjartaheilla á Suðurnesjum, virðist almenningur hér suðurfrá taka verkefninu einstaklega vel.  Starfsmenn Inpro koma daglega í fyrirtæki á Suðurnesjum til að mæla ástand starfsfólks.  Margir gleðjast yfir staðfestingu á góðu formi meðan aðrir fá gula kortið.  Markmiðið er líka að ná til allra 40 ára og eldri á Suðurnesjum og koma sem flestum í betra form en þeir eru í dag.  Hreyfiseðillinn er að virka vel en skvt. honum getur fólk fengið fína möguleika til að hreyfa sig og breyta um lífsstíl.

Við erum mjög ánægð með viðtökurnar, segir Hjálmar og reiknar með að á næstu 18 mánuðum verði búið að ná til allra sem eru 40 ára og eldri hér suðurfrá.  Inpro er með starfsstöð á Hringbrautinni (uppi þar sem Lyfja er) og getur fólk komið þangað til að fá mælingu.

Ég minni á að Suðurnesin koma langverst út hvað varðar líkur á hjartasjúkdómum.  Þess vegna er mikilvægar fyrir okkur en önnur landsvæði að grípa til róttækra aðgerða og breyta lífsstílnum.  það einfaldlega eykur lífslíkurnar.

Á fimmtudaginn hefst í Íþróttaakdemíunni frábært námsskeið sem mun standa fjögur fimmtudagskvöld.  Þar munu mjög færir sérfræðingar koma og hreinlega kenna fólki á auðveldan hátt og skemmtilegan að breyta um lísstíl. 

Námsskeiðið er styrkt af Glitni og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.  Ég skora á fólk að rífa sig upp úr sófanum og skella sér á þessi skemmtilegu námsskeið í Akademíunni.  Enginn mun sjá eftir því og hver veit nema þau verði byrjun á breyttum lífsstíl og betri líðan fyrir þátttakendur, segir Hjálmar að lokum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024