Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ
Heilsu- og forvarnarvika verður haldin í Reykjanesbæ í þriðja sinn dagana 27. september til 3. október n.k.
Allar stofnanir Reykjanesbæjar sem og fyrirtæki og stofnanir í bæjarfélaginu taka þátt og bjóða upp á heilsutengda dagskrá en markmið heilsu- og forvarnarvikunnar er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingurinn getur staðið frammi fyrir á lífsleiðinni og hlúa að verndandi þáttum með þátttöku allra bæjarbúa.
Dagskrá verður birt á vefsíðu Reykjanesbæjar. Einnig verður hægt að fylgjast með hjá Reykjanesbæ á Facebook.