Heiðarleikar og skólaslit Myllubakkaskóla
Það hefur verið mikið fjör í skólum bæjarins undanfarna daga og vikur þegar nemendurnir komast í langþráð sumarfrí. Heiðarskóli hélt á dögunum hina árlegu Heiðarleika þar sem nemendur allra bekkja skólans fá að spreyta sig á hinum ýmsu þrautum. Má þar nefna stígvélakast, húlla-keppni, bókargöngu, skot á mark, safna boltum og ýmislegt fleira. Krakkarnir voru í miklu stuði og voru í engum vafa um að þeirra bekkur væri langbestur ef einhver spurði. Keppnin var þó drengileg og skemmtileg eins og myndirnar í myndasafninu sýna.
Skólaslit voru í dag í Myllubakkaskóla og útskrifaði skólinn 39 nemendur úr 10. bekk. 390 nemendur voru í skólanum þetta skólaárið og er ekki hægt að merkja neina fækkun þótt skólum bæjarins hafi fjölgað um einn. Fjölmargar viðurkenningar voru veittar fyrir góðan námsárangur og góða hegðun. Veitt voru verðlaun úr Minningarsjóði Vilhjálms Ketilssonar og var það dóttir hans, Vala Rún Vilhjálmsdóttir, sem veitti verðlaunin. Þau hlutu Guðmundur Auðunn Gunnarsson fyrir góðan árangur á samræmdum prófum, Helena Rós Þórólfsdóttir fyrir góðan árangur í stærðfræði og Kristín Rut Jóhannsdóttir hlaut skriftarviðurkenningu. Við óskum þeim sem og öðrum verðlaunahöfum og útskriftarnemum til hamingju með árangurinn. Sjá má myndir frá athöfninni í myndasafninu.
Vf myndir/Magnús.