HSS
HSS

Mannlíf

Heiðabúar setja svip á bæinn í Duus
Mánudagur 5. júní 2017 kl. 05:00

Heiðabúar setja svip á bæinn í Duus

-Skátafélagið Heiðabúar fagna 80 ára afmæli

Skátafélagið Heiðabúar fagnar 80 ára afmæli í september næstkomandi og af því tilefni verður sýningin „Þau settu svip á bæinn“ opnuð föstudaginn 9. júní kl.18 í Byggðasafni Reykjanesbæjar Duushúsum. Á sýningunni verða ýmsir munir til sýnis, farið verður yfir sögu skátafélagsins og stiklað á stóru.


Skátafélagið Heiðabúar var stofnað 15. september árið 1937 og aðalhvatamaður þess var Helgi S. Jónsson. Saga Heiðabúa er merkileg í skátasögunni vegna þess að í því félagi sameinast í fyrsta sinn í heiminum drengir og stúlkur í einu félagi. Heiðabúar hafa orðið þeirra gæfu aðnjótandi að þar hafa menn ekki gert aðeins stuttan stans heldur hafa þó nokkrir sinnt þörfum félagsins í mörg ár, sumir alla ævi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Skátastarfið og skátaandinn vinna eftir þaulreyndum starfsaðferðum  og leitast við að skapa börnum og unglingum ánægjulega og þroskandi tómstundaiðju. Heiðabúar hafa ávallt sett svip á bæinn með virkri þátttöku í öllum helstu viðburðum bæjarins s.s. sumardaginn fyrsta, 17. júní, Ljósanótt, sumarstarfi fyrir börn og áramótum.


Sunnudaginn 11. júní frá kl. 14-16 munu Heiðabúar bjóða upp á skátasmiðjur þar sem hægt verður að læra tálgun, leðurgerð, hnúta og að skapa sinn eigin fána.


Sýningin í Duus stendur til 20. ágúst og er opin alla daga frá 12 til 17.