Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Hefur alltaf verið heilluð af Biblíunni
Petrína er prestur við Árbæjarkirkju. Hún segir það hafa verið mikið gæfuspor að hefja nám við guðfræðideild enda hafi hún kynnst Biblíunni enn betur þar. VF-mynd/dagnyhulda
Sunnudagur 18. desember 2016 kl. 06:00

Hefur alltaf verið heilluð af Biblíunni

- Petrína Mjöll Jóhannesdóttir fagnaði útgáfu bókar á fimmtugs afmælinu

„Það eru margir sem hafa áhuga á Biblíunni en finnst hún vera svolítið óaðgengileg og erfið sem hún vissulega er,“ segir Petrína Mjöll Jóhannesdóttir sem í vikunni sendi frá sér bókina Salt og Hunang. Bókin inniheldur orð úr Biblíunni til íhugunar fyrir hvern dag ársins. Petrína segir bókina bæði til uppbyggingar og hvatningar í daglega lífinu. Petrína vann að bókinni í mörg ár og hefur valið vers og túlkað þau út frá því sem þau geta sagt okkur. „Þetta er mín leið til að sýna fólki að það er heilmikið í Biblíunni sem veitt getur svör við því sem fólk er að glíma við í hinu daglega lífi.“ Í bók Petrínu eru vers úr öllum bókum Biblíunnar en þær eru 66 að tölu. Aftast í bókinni er orðaskrá og því hægt að fletta upp íhugunum sem henta fyrir sérstakar aðstæður, eins og gleði, sorg, samskipti, erfiðleika og svo framvegis.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Núvitund í Biblíunni
Petrína er prestur við Árbæjarkirkju í Reykjavík. Hún ólst upp í Keflavík í stórum systkinahópi og hefur verið heilluð af Biblíunni síðan í æsku en þá tók hún mikinn þátt í kristilegu starfi. „Mér fannst Biblían alltaf svolítið erfið. Hún er svo innihaldsrík en maður áttar sig ekki alltaf á því. Það er margt í henni sem við teljum okkur vera að uppgötva í dag eins og til dæmis árvekni og núvitund en um það er fjallað í Biblíunni. „Látið hverjum degi nægja sína þjáningu,“ segir Jesús í fjallræðunni. Í Biblíunni má finna ýmis gömul sannindi sem gilda alltaf, til dæmis um það hvernig maður getur orðið hamingjusamur og lifað góðu lífi.“ Petrína segir það hafa verið mikið heillaskref á sínum tíma að fara í guðfræðideildina enda hafi Biblían opnast þar fyrir henni á nýjan hátt.

Petrína ásamt þeim Eddu Möller og Guðbjörgu Ingólfsdóttur í útgáfuhófi á fimmtíu ára afmælisdaginn sem var í síðustu viku, 6. desember.


Eiginmaðurinn hefur umsjón með jólabakstrinum
Í gegnum tíðina hefur gegnið mis vel hjá Petrínu og fjölskyldu að halda í jólahefðirnar. Börnin hennar fjögur eru á aldrinum 14 til 25 ára og heldur fjölskyldan ennþá í þá hefð að eiga hátíðlega stund í hvert sinn þegar kveikt er á kerti á aðventukransinum. „Þessa hefð höfum við haft síðan börnin voru lítil. Við setjumst niður, syngjum aðventusálminn, biðjum og kveikjum á kerti. Nú eru þau orðin eldri, eiginlega fullorðið fólk, en það er alltaf jafn dýrmætt að eiga þessa stund saman.“ Eiginmaður Petrínu, Ögmundur Máni Ögmundsson, hefur yfirumsjón með bakstrinum á heimilinu. „Það eru ákveðnar sortir sem við bökum alltaf og mömmukökurnar og lakkrístopparnir eru vinsælastar.“


[email protected]