„Hef þurft að taka á stórum fíkniefnamálum,“ segir Kári Gunnlaugsson, yfirtollvörður.
„Þetta starf líkar mér mjög vel enda hef ég verið hérna í 34 ár,“ segir Kári Gunnlagusson, 56 ára yfirtollvörður eftirlitsdeildar tollstjóra. Kári hóf störf hjá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli árið 1977 en hann útskrifaðist frá tollskóla ríkisins fjórum árum síðar. Árið 1984 tók hann svo við stöðu deildarstjóra í fíkniefnadeild tollsins.
„Alvarlegustu málin sem koma inn á borð til mín eru auðvitað fíkniefnamál og hef ég þurft að taka á þeim nokkrum stórum,“ sagði Kári. Þegar Kári var spurður út í það hvort hann hafi þurft að stoppa einhvern vegna of mikils gjaldeyris, þá sagði Kári bara pass en ný lög hljóða þannig að ekki megi fara með yfir 350.000 kr. í gjaldeyri í gegnum tollinn.
Kári ætlar að ferðast innanlands í sumar. „Ég hef gaman af því að ferðast en við hjónin stefnum á að fara til Kína í haust.“ Íþróttir hafa einnig spilað mikið inn í sumarfrí Kára en eins og margir vita spilaði hann með meistaraflokki Keflavíkur í knattspyrnu. „Mig dreymdi alltaf um að komast lengra í fótbolta en ég spilaði í tíu ár í meistaraflokki Keflavíkur og þá dæmdi ég líka í 15 ár, meðal annars erlendis.“ Af þessum 15 árum var hann aðstoðardómari í sjö ár fyrir Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) og dæmdi knattspyrnuleiki í yfir 30 löndum.
Kári segir starfið sem hann sé í núna geta allt eins verið draumastarfið enda hefur hann verið þar í 34 ár, hann hefur bara ekki dreymt það enn.
[email protected]