HSS
HSS

Mannlíf

Fimmtudagur 9. desember 1999 kl. 22:38

HÉÐINN WAAGE Í GÓÐUM GÍR EFTIR AÐGERÐINA

Héðinn Waage fór í stóra aðgerð fyrir rúmu ári síðan til Vínarborgar vegna Parkinsons-sjúkdóms sem hann hafði verið með á annan áratug, en hann er fyrsti Íslendingurinn sem fer í slíka aðgerð. Héðinn greindist með parkinsonsjúkdóminn aðeins 26 ára að aldri. Aðgerðin fólst í að tvö rafskaut voru tengd við heila hans sem örva pínulítinn hluta heilans. Árangurinn hefur verið vonum framar og nú er Héðinn loksins farinn að geta notið lífsins til fulls. „Ég er að mestu laus við öll lyfin og lífið er miklu betra í dag en það var. Ég hvílist orðið mjög vel en fyrir aðgerðina svaf ég í mesta lagi í tvo tíma, vegna vanlíðunar. Ég slökkti á lyfjadælunni þegar ég fór að sofa en vaknaði kannski um miðja nótt alveg frosinn. Það tók mig oft um klukkutíma að ná að snúa mér á hina hliðina og kveikja aftur á dælunni. Þegar hún fór í gang fór ég svo á fulla ferð. Aðalvandamálið var ekki skjálftinn heldur aukahreyfingarnar sem fylgdu lyfjunum”, segir Héðinn og fær sér kaffisopa. Lögguvesen Þegar Héðinn var sem verstur var hann iðulega stöðvaður af lögreglunni og grunaður um ölvun við akstur, enda átti hann erfitt með mál og hreyfingar. Hann ber lögreglunni þó vel söguna og segir gott að vita hversu vel lögreglumenn fylgist með. „Maður var alltaf í vandræðum með lögguna þangað til læknirinn minn sendi skýrslu á allar lögreglustöðvarnar þar sem fram kom að það væri í lagi með mig. Ég fékk stöðugt á mig kærur fyrir að vera blindfullur á bíl”, segir Héðinn og hlær af minningunni. Tónlist og málmsmíði Héðinn er hæfileikaríkur maður og eftir aðgerðina hefur hann getað leyft hæfileikum að njóta sín meira en áður. „Ég hef alltaf spilað á bassa og við félagarnar, Ingi Kristins, Stebbi Jóns í Grágás, Maggi og Óli Ásmunds komum reglulega saman og spilum okkur til ánægju”, segir Héðinn. Það fer heldur ekki framhjá neinum sem sér geisladiskasafn Héðins að þarna er mikill tónlistaráhugamaður á ferð. Á stofuveggnum á heimili hans, hangir skemmtilegur málmsmíðagripur sem Héðinn hannaði og smíðaði. Hann segir að slíka vinnu hafi hann ekki geta fengist við fyrir aðgerðina. Á borðinu hjá honum er líka bunki af frumsömdum ljóðum. Héðinn bendir á eitt ljóðið og segir að þetta sé mottóið sitt. Ég lifi fyrir daginn í dag drattast ekki í fortíðinni eins og lítið fallegt lag ég lifi í nútíðinni Feluleikurinn verstur Það þykir mjög óalgengt að fólk undir þrítugu greinist með parkinson og læknar geta ekki fullyrt hvers vegna sumir fá þennan sjúkdóm og aðrir ekki. Héðinn telur að sjúkdómurinn hafi alltaf búið í honum og fyrst eingöngu komið fram þegar hann var undir miklu álagi, en þá fór hann oft að titra. „Verstu árin voru þegar ég var að byrja að fá einkennin, ekki þegar að fólk sá mig sem verstan. Ég var alltaf í feluleik. Þegar ég byrjaði að skjálfa fór ég alltaf með hendina í vasann og svoleiðis. Þegar ég var farinn að meðtaka sjúkdóminn, þá fór ég bara út og gerði hvað sem er”, segir Héðinn. Stefnir á þýskunám Héðinn þarf að fara einu sinni á ári til Austurríkis að láta stilla búnaðinn og er nýkominn heim úr slíku ferðalagi. „Í hvert skipti sem maður fer í tékk þá lagast maður alveg helling. Mánuði áður en ég fór út núna var ég farin að missa mál og göngulagið orðið slæmt. Ég var hættur að geta gengið, tiplaði bara á tánum.” Héðinn segir að honum hafi líkað vel í Austurríki en honum finnist Austurríkismenn þungir, svolítið líkir Íslendingum. Héðinn segist ekki tala þýsku enn sem komið er en hann hafi áhuga á að fara í skóla eftir áramót og læra þýsku. Hræðsla betri en vorkunn Héðinn er ekki maður sem vorkennir sjálfum sér eða vill láta vorkenna sér, honum finnst það verulega óþægilegt. „Mér líður eiginlega betur að ganga niður Laugaveginn í Reykjavík heldur en Hafnargötuna. Þegar ég gekk niður Hafnargötuna horfði fólk frekar á mann og hugsaði „aumingja strákurinn”. Þegar ég æddi niður Laugaveginn litu allir á mig hatursfullu augnaráði og hugsuðu eflaust „hvað er þessi ruglaði dópisti að gera hér”. Mér finnst miklu betra þegar fólk er hrætt heldur en það líti á mig með vorkunn”, segir Héðinn. Hefur aldrei skammast sín fyrir mig Héðinn er fráskilinn og á tvö börn, Baldur 15 ára og Elsu 8 ára. Héðinn er stoltur af börnunum sínum en Baldur býr hjá föður sínum og Elsa hjá móður sinni. Héðinn segir þá feðga vera góða vini og segir að Baldur hafi verið alveg ótrúlega skilningsríkur. „Margur unglingurinn hefði eflaust skammast sín fyrir karlinn. Baldur hefur aldrei gert það og hefur alltaf viljað koma með mér út um allt”, segir Héðinn. Verður seint tölvugúru Samhæfni og Sparisjóðurinn í Keflavík gáfu Héðni nýverið fullkominn tölvubúnað frá Hewlett Packard og Opnum kerfum, Gjorby Internet gaf honum nettengingu og áskrift og Tölvuskóli Suðurnesja ætlar að gefa honum námskeið svo Héðinn geti verið í góðu sambandi við læknana sína í Austurríki og aðra sjúklinga sem hafa farið í slíka aðgerð. „Mig langar að koma á framfæri innilegu þakklæti til þeirra fyrirtækja sem gáfu mér tölvu pakkann, segir Héðinn. Hann bendir einnig á algengan missklining þess efnis að hann sé fyrsti sjúklingurinn sem fer í slíka aðgerð. „Hið rétta er að ég nota nýja útfærslu á ákveðinni tækni sem hefur verið notuð á fjölda annarra sjúklinga á undan mér. Ég er semsagt fyrsti sjúklingurinn með þennan ákveðna búnað og þess vegna þurfa læknarnir að fylgjast sérstaklega vel með mér. Nú get ég verið í stöðugu sambandi við læknana og aðra sjúklinga”, segir Héðinn. Hann segist þó ekki kunna almennilega á tölvuna ennþá en hann fái að fara á námskeið fljótlega til að læra á græjurnar. Héðinn hlær bara þegar hann er spurður að því hvort hann eigi eftir að enda sem tölvugúru. „Nei, ætli það nokkuð”, segir hann og hristir hausinn.
Bílakjarninn
Bílakjarninn