Hausttónleikar Lúðrasveitarinnar - Bíótónleikar
Hausttónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða haldnir þriðjudaginn 20. nóvember nk. kl.19.30 í Stapa, Hljómahöllinni. Fram koma yngsta, mið og elsta sveit.
Það kennir ýmissa grasa í efnisskrá sveitanna á þessum tónleikum, en þó einkennast þeir af ríkjandi þema, sem er kvikmyndatónlist. Jafnframt verða sýnd myndskeið úr viðkomandi kvikmyndum. M.a. verður leikin tónlist úr kvikmyndunum Galdrakarlinn í Oz, Mary Poppins, Brúin yfir Kwaifljótið, Star Wars, Men In Black.
Stjórnendur lúðrasveitanna eru Harpa Jóhannsdóttir, Karen J. Sturlaugsson, Sigurjón B. Daðason og Þorvaldur Halldórsson.
Búast má við skemmtilegri stemmningu og líflegum tónleikum. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Allir áhugasamir eru eindregið hvattir til að mæta og taka með sér gesti.