Haustið er tími berjanna
Í Grindavík hafa 6. bekkirnir nýtt góðviðrisdaga haustsins til útiveru. Berjaspretta hefur verið með ágætum Grindavík þetta haustið þannig að kennarar og nemendur brugðu á það ráð að fara í berjamó. Ílátin voru fljót að fyllast og eitt og eitt ber fór beina leið niður í maga. Ekki amalegt að hafa þessa möguleika sem eru við skólann. Stutt að fara til berja og skemmtunin skammt undan.
Nánar hér!