Hátíðardagskrá í Stapa 1. maí
Hátíðardagskrá verður í Stapa í Reykjanesbæ laugardaginn 1. maí í tilefni af alþjóðlegum degi verkafólks. Félagar í stéttarfélögum í Reykjanesbæ eru hvattir til að mæta á dagskránna sem er skreytt með ræðum, söng og dansi. Þá er börnum boðið á kvikmyndasýningu í Sambíóinu í Reykjanesbæ kl. 14.
kl. 13.45
Húsið opnar.
Guðmundur Hermannsson leikur ljúfa tóna.
kl. 14.00
Setning: Kristján Gunnarsson formaður Verkalýðs-og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis
Ræða dagsins: Sigurður Bessason formaður Eflingar
Söngur: Jóhann Smári Sævarsson
Dans: Aníta Lóa Hauksdóttir og Pétur Fannar Gunnarsson Íslands-og alþjóðlegir meistarar í samkvæmisdönsum
Gospelkór Suðurnesja, stjórnandi Magnús Kjartansson
Kynnir: Guðbrandur Einarsson formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja
Kaffiveitingar í boði stéttarfélaganna
kl. 14.00
Börnum boðið á bíósýningu í Sambíói Keflavík
Félagar fjölmennið á 1. maí hátíðarhöldin, segir í auglýsingu frá Rafiðnaðarfélagi Suðurnesja, FIT félagi iðn- og tæknigreina, Verslunarmannafélagi Suðurnesja, Starfsmannafélagi Suðurnesja og Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis.
Ljósmynd: Gömul og góð stemmningsmynd frá hátíðarhöldum 1. maí hér á árum áður.