Bygg
Bygg

Mannlíf

Hátíðardagskrá í Stapa
Sunnudagur 1. maí 2011 kl. 13:21

Hátíðardagskrá í Stapa

Hátíðardagskrá á alþjóðlegum degi verkafólks verður í Stapa í Reykjanesbæ og hefst dagskráin núna kl. 14:00. Georg Georgsson, formaður Rafiðnaðarfélags Suðurnesja mun setja dagskránna en síðan flytur Hilmar Harðarson, formaður Félags iðn- og tæknigreina ræðu dagsins.

Flutt verður atriði úr revíu Leikfélags Keflavíkur og sönghópurinn Orfeus syngur nokkur lög.

Kynnir dagsins er Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja. Kaffiveitingar eru í boði stéttarfélaganna.


Bílakjarninn
Bílakjarninn