Hátíðardagskrá á degi íslenskrar tungu í Duushúsum

Á hátíðinni er boðið up á fjölbreytt skemmtiatriði og eins mun menntamálaráðherra afhenda tvær sérstakar viðurkenningar fyrir stuðning við íslenska tungu. Tónlistarflutningur verður í höndum nemenda Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og fundarstjóri verður Guðni Olgeirsson.
Veitingar verða í boði sjávarútvegsráðuneytinsins og eru allir velkomnir í Duushús.
Dagskráin er sem hér segir:?
-Rímnakviða eftir Jón Leifs, Mist Elíasdóttir leikur á píanó
-Setning hátíðardagskrár
-Upplestur: Elísa Sveinsdóttir, nemandi í Heiðarskóla
-Ávarp menntamálaráðherra
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar afhent
Ávarp verðlaunahafa
-Úr Hulduljóðum eftir Jónas Hallgrímsson, lag Atla Heimis Sveinssonar
Dalvísa: Fífilbrekka gróin grund eftir Jónas Hallgrímsson, lag Atla Heimis Sveinssonar
Sveinn Enok Jóhannsson syngur
-Upplestur, Óli Ragnar Alexandersson, nemandi í Njarðvíkurskóla
-Litla vina og Lítill fugl eftir Sigfús Halldórsson
Gítarsamspil: Aðalsteinn Axelsson, Hjörtur Pálmi Pálsson, Sigfús Jóhann Árnason og Reynir Örn Gíslason
-Menntamálaráðherra afhendir tvær sérstakar viðurkenningar fyrir stuðning við íslenska tungu
Ávörp viðurkenningarþega
-Davíð A. Stefánsson les úr nýrri bók sinni, Tvískinnu
-Illur lækur eftir Jónas Hallgrímsson
Íslenskt þjóðlag í útsetningu Hildgunnar Rúnarsdóttur
Kristín Þóra Jökulsdóttir syngur