Happy-face til styrktar góðra málefna
Að Baldursgötu 14 hefur listakonan Lína Rut aðsetur en hún hefur í gegnum tíðina fengist við myndlist og skúlptúra og m.a. sýnt á Ljósanótt undanfarin fjögur ár. Á komandi Ljósanótt mun Lína vera með sýningu á vinnustofu sinni þar sem fólk getur notið myndlistar hennar og skúlptúra auk þess sem bryddar upp á nýung þetta árið.
Hún hefur búið til Happy-face kall sem hún hygst selja og hluti af ágóðanum mun renna til góðgerðamála. „Núna um helgina er ég að fara að kynna þennan kall sem heitir Happy-face og hugsunin er sú að þú getir keypt þér fallega vöru og styrkt gott málefni um leið. Aðallega hafði ég hugsað um að styrkja fötluð og veik börn,“ segir Lína en fígúran mun kosta 14.500 og mun hluti af söluverðinu fara til góðgerðarmála eins og áður segir. Einnig er Lína að kynna til leiks ný gjafabox sem hægt að hengja lokin af upp á vegg sem málverk. „Ég held að þarna sé ég með eitthvað nýtt í höndunum, ég veit ekki til þess að svona sé til,“ segir Lína en gjafarboxin má endurnýta og geyma má alls kyns dót í þeim.
Lína kemur aðeins að verkefninu Klikkaður kærleikur þar sem sameina á tónleika og listasýningar af ýmsu tagi. Þar lánar hún Spiral hönnun mynd af Happy-face kallinum og þær munu þrykkja hana á boli og selja til styrktar góðra málefna. „Þetta er bara fyrsta skrefið með Happy-face og það eru margar hugmyndir í gangi. Ég vill senda þessa fígúru á flakk. Nú t.d. lána ég þeim hjá Spiral hönnun hann og þær nýta hann eins og þær vilja.
Nú á haust mánuðum þá mun Happy-face taka þátt í vekefni sem tengist félagi krabbameinsjúkra barna sem heitir Kraftur, þau munu þá nýta mína hönnun og selja eins og þeim lystir. Svo er annað spennandi verkefni en þar ætlar fatahönnuðurinn Hildur Sumarliðadóttir að koma á Ljósanótt og kynna barnafatalínu sem andlit Happy-face prýðir.“ Lína á sjálf tvo sérstaka drengi sjálf og segir hugmyndina um að styrkja börn með sérþarfir hafa blundað lengi í sér. „Þó maður geti ekki gert mikið þá vill maður samt hjálpa. Mig langaði að gera eitthvað sem væri að skila inn peningum allt árið. Ég hef tekið þátt í því að gefa listaverk og þá selst það á ákveðna summu sem hverfur bara í einhverja hít því þörfin er svo mikil. Þannig ég hugsaði um að gera eitthvað sem tikkar inn allt árið,“ segir Lína.
Lína var önnum kafin við undirbúning á komandi sýningu þegar blaðamann bar að garði en hún hafði ekki haft tíma til að punta sig enda birtist útsendari Víkurfrétta óvænt inn á vinnustofu til hennar.
þegar kom að því að stilla sér upp fyrir myndatöku þá vildi hún endilega bregða aðeins á leik og setti upp nýtt andlit, ánægt og risastórt bleikt andlit.
Lína segist vona að vörurnar nái að safna fjármunum til styrktar fötluðum, langveikum börnum og foreldrum þeirra á Íslandi.
Hún mun kappkosta við að hanna og framleiða fallegar og nýtanlegar vörur þannig að kaupandinn styrki gott málefni um leið og hann eignast fallega og eða skemmtilega vöru. Að endingu vonar Lína að Happy-face eigi eftir að vaxa og dafna og eigi eftir að finna sér marga samstarfsaðila í framtíðinni.