Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Hans Klaufi flúinn inn úr rigningunni - og verður í Njarðvíkurskóla
Fimmtudagur 1. júlí 2010 kl. 16:56

Hans Klaufi flúinn inn úr rigningunni - og verður í Njarðvíkurskóla

Leikhópurinn Lotta sýnir nýjasta verk sitt, Hans klaufa, í Njarðvíkurskóla í dag kl. 18. Sýningin átti að vera í skrúðgarðinum í Njarðvík en vegna veðurs var ákveðið að fara með sýninguna í skólann.

Verkið skirfaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr ævintýraheiminum. Þar má til dæmis nefna Öskubusku og froskaprinsinn. Verkið segir frá því þegar Aron prins og aðstoðarmaður hans, Hans klaufi, koma heim úr löngu ferðalagi. Þegar heim kemur komast þeir að því að ekki er allt með felldu. Norn hefur komið þangað í fjarveru þeirra, lagt álög á kóngsríkið og svæft alla þegna þess og til að bæta gráu ofan á svart breytir hún Aroni prins í frosk. Nú eru góð ráð dýr og er það undir Hans klaufa komið að aflétta álögunum og bjarga kóngsríkinu. Verst bara hvað hann er mikill klaufi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Miðaverð er 1.500 kr. og hefst sýningin klukkan 18:00.