Handverkssýningin með nýju sniði

Jafnhliða handverksýningunni verður kynning á öllum tómstundafélögum bæjarfélagsins í tilefni Frístundahátíðar.
Að þessu sinni verður þátttakan öllum ókeypis, bæði sýnendum, seljendum og gestum, en á móti skapar hver og einn þátttakandi þá aðstöðu sem hann þarf, þ.e. kemur sjálfur með borð og annað sem á þarf að halda. Bæjarfélagið leggur til húsnæði, umsjónarmann og sér um að auglýsa sýninguna.
Á vef Reykjanesbæjar kemur fram að þeir sem hafi áhuga á þátttöku geti skráð sig í síma 840 5799 eða á netfangið: [email protected].