Handverkssýning í íþróttahúsinu um helgina
Um næstu helgi verður hin árlega handverkssýning haldin í Íþróttahúsinu við Sunnubraut. Síðustu þrjú árin hefur handverksfólk af Reykjanesi sameinast handverksfólki annars staðar að af landinu við að sýna og jafnframt selja verk sín bæjarbúum og gestum til ánægju. Fjöldi sýnenda er svipaður og áður en nú verður meira um að handverkið sjálft verði sýnt, þ.e. hvernig gera skal hlutina. Sýnikennsla verður á ýmsu verklagi s.s. útskurði, leirmótun, silkimálun og útsaumi.
Margs konar skemmtiatriði verða á sviðinu báða dagana og einnig verður opið kaffihús á staðnum. Þess má einnig geta ýmis tómstundafélög í Reykjanesbæ ætla að kynna starfsemi sína á staðnum og gefst því fólki tækifæri til að kynna sér mismunandi tómstundagaman.
Aðgangseyrir er krónur 400 fyrir fullorðna en vekja skal athygli á því að aðgöngumiðinn gildir jafnframt sem 200 króna úttekt á hvaða grip sem er á sýningunni og miðað við síðustu ár má búast við að margt eigulegra muna verði á staðnum. Vona aðstandendur sýningarinnar, sem eru Menningar-, íþrótta- og tómstundasvið Reykjanesbæjar ásamt handverksfólki úr Reykjanesbæ, til þess að bæjarbúar og gestir þeirra njóti sem best.
Sýningin er opinn laugardaginn 21.maí og sunnudaginn 22. maí frá kl.
12.00-18.00.
Mynd af vef Reykjanesbæjar