Mannlíf

Handverk hjá Sjálfsbjörg á Suðurnesjum
Miðvikudagur 2. september 2026 kl. 08:53

Handverk hjá Sjálfsbjörg á Suðurnesjum

Sjálfsbjörg á Suðurnesjum býður gestum og gangandi til opins húss á Ljósanótt þar sem starfsemi félagsins verður kynnt.

Gestir geta kynnt sér fjölbreytt handverk sem unnið er innan félagsins, svo sem postulínsmálun, kortagerð, silkimálun og margt fleira.

Sjálfsbjargarfólk hlakkar til að taka á móti gestum og verður heitt á könnunni.

Viðburðurinn er öllum opinn og fer fram fimmtudaginn 3. september á Iðavöllum 9 á milli klukkan 13:00 og 16:00.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn
Bílakjarninn