Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Hamagangur í hellinum
Laugardagur 30. nóvember 2013 kl. 08:00

Hamagangur í hellinum

Jólaleikrit Leikfélags Keflavíkur

Töluverð frumsýningarstemning var meðal Grýlu, Leppalúða og hinna félaganna hjá Leikfélagi Keflavíkur þegar blaðamaður Víkurfrétta kíkti á æfingu hjá þeim á mánudagskvöld. Það styttist líka óðum í frumsýningu jólaleikritsins Hamagangur í Hellinum á föstudagskvöld. Verkið er unnið upp úr öðru leikriti en stytt og staðfært á skemmtilegan hátt af leikhópnum sjálfum. Ýmsar kunnuglegar og  litríkar persónur munu koma fram í verkinu sem gerist í helli Grýlu og Leppalúða þar sem jólasveinarnir undirbúa komu jólanna ásamt foreldrum sínum og gæludýrum. Þrír kettir taka þátt í sýningunni; gamli jólakötturinn, nýi jólakötturinn og einn alvöru köttur.

Að sögn Höllu Karenar Guðjónsdóttur, sem leikur Grýlu, leiðir sagan áhorfendur einnig inn á hótel í Reykjanesbæ þar sem skemmtilegir og óvæntir hlutir gerast. Hamagangur í hellinum er þriðja verkið sem fer á fjalir Frumleikhússins á þessu ári og það segir allt um grósku leiklistarstarfs hér á svæðinu. Enginn leikstjóri var ráðinn að þessu sinni heldur tók hópurinn að sér, í annað sinn frá upphafi, að stýra í sameiningu. Halla Karen segir það hafa gengið mjög vel. Verkið verður sýnt um helgar fram að jólum, sýningin tekur eina klukkustund og er fyrir alla fjölskylduna.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Miðaverði er stillt í hóf, aðeins 1000 krónur, til þess að sem flestir geti nýtt sér það tækifæri að stíga örlítið út úr jólaösinni og njóta þessarar skemmtilegu sýningar.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á æfingunni.