Halla sýnir fléttur í Svarta pakkhúsinu
Halla Harðardóttir opnaði myndlistarsýningu í Svarta pakkhúsinu sl. sunnudag og verður hún opin út nóvember mánuð. Sýningin ber nafnið „Fléttur“ og á henni sýnir Halla abstrakt myndir og sækir efniviðinn í náttúru Íslands.
Halla hefur verið félagi í Myndlistarfélagi Reykjanesbæjar frá stofnun og er virkur þátttakandi. Sýningin er opin alla daga kl.13-17.