Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fimmtudagur 11. mars 1999 kl. 21:55

HÆTTU ÁÐUR EN ÞÚ BYRJAR

Mánudag og þriðjudag í næstu viku verður unglingum í 9. og 10. bekk Njarðvíkurskóla kynnt Maritaforvarnarverkefnið sem var kynnt í Holtaskóla í byrjun marsmánaðar. Verkefnið er á vegum Lögreglunnar í Keflavík, Félagsmálastofnunar Reykjanesbæjar og Marita forvarna- og hjálparstarfs. Unglingarnir horfa á kvikmynd um skaðsemi og afleiðingar fíkniefnaneyslu, fyrrverandi fíkill segir sögu sína og lögreglan kynnir starf sitt. Þegar að 9. og 10. bekkir Njarðvíkurskóla hafa farið á fyrirlesturinn er komið að foreldrum í Njarðvík. Þriðjudagskvöldið 16. mars nk. kl. 20:00 verður haldinn fundur í Njarðvíkurskóla fyrir foreldra nemenda 9. og 10. bekkjar í Njarðvíkurskóla. Foreldrafundurinn er á svipuðum nótum og fræðsla unglinganna en auk þess mun Félagsmálastofnun Reykjanesbæjar kynna starf sitt. Við viljum tala við ykkur, þið verðið að ræða við börnin ykkar Foreldrafundurinn sem haldinn var í Holtaskóla heppnaðist mjög vel. Foreldrar fjölmenntu á fundinn og hann vakti fólk til umhugsunar. Ég vil hvetja foreldra 9. og 10. bekkjar unglinga í Njarðvíkurskóla til þess að mæta á fundinn. Fræðsla sem þessi virkar best ef við foreldrar tökum virkan þátt og tölum við unglingana um þessi mál. Virkasta forvörnin er sú sem byrjar inni á heimilunum. Auk þess að tala við unglinginn um þessi mál sem og önnur, þá er mikilvægt fyrir foreldra að láta sig skipta máli hverjir umgangast unglinginn, hverjir eru vinir hans og kærasti/kærasta. Í stuttu máli; ekki missa samband við unglinginn. Nú á síðustu misserum hafa enn fleiri kannanir og skýrslur komið fram um samskipti foreldra og barna sem styðja hin algildu sannindi að aukin samvera barns og foreldra er besta leiðin til þess að skila heilsteyptum einstaklingi í þjóðfélagið. Með forvarnarkveðju, Eysteinn Eyjólfsson verkefnisstjóri Reykjanesbæjar á réttu róli
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024