Hádegiserindi um offitu barna í Keili í dag
Í dag, þriðjudag klukkan 12.10 verður Þrúður Gunnarsdóttir sálfræðingur og dr. í lýðheilsuvísindum með mjög spennandi erindi á sal í Keili um offitu barna, forvarnir og úrræði. Þrúður skrifaði doktorsritgerð sína um fjölskyldumiðaða atferlismeðferð fyrir of feit börn og starfar í dag við slíkar meðferðir.
Þrúður mun tala til okkar sem foreldra og veita góð ráð um hvernig við getum stuðlað að heilbrigðu líferni barna okkar.
*Allir velkomnir – Aðgangur ókeypis – Mötuneyti á staðnum*
Fyrirlesturinn í í tilefni Heilsu- og forvarnarviku Reykjanesbæjar sem var í síðustu viku en þá forfallaðist Þrúður.