Hádegisbrunch til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra
Hádegisbrunch að hætti matreiðslumeistara Bláa Lónsins verður í boði laugardaginn 29. september kl 12.00 í Bláa Lóninu.
Öll innkoma vegna viðburðarins rennur til Íþróttasambands fatlaðra. Verð er 3.900 krónur fyrir fullorðna, 1.950 krónur fyrir 7-12 ára börn. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Boðskort í Bláa Lónið er innifalið í verði fyrir þá sem bóka fyrir kl. 16.00 föstudaginn 28. september.
Ólympíufararnir verða á staðnum og söngkonan vinsæla, Bríet Sunna, mun flytja nokkur lög.
Bláa Lónið og Íþróttasamband Fatlaðra gerðu með sér samstarfssamning fyrir Ólympíumót Fatlaðra í London í sumar. Samningurinn er til fjögurra ára og gildir fram yfir Ólympíumót Fatlaðra í Ríó 2016.