Gunni Þórðar með eins manns konsert
Gunnar Þórðarson, tónlistarmaður og einn af sonum Keflavíkur, verður með eins manns konsert í Bíósal Duushúsa á morgun, laugardaginn 7. nóvember kl. 20.30.
Þar mun hann töfra fram margar af sínum ódauðlegu dægurlagaperlum.
Gunnar hefur á löngum og glæsilegum tónlistarferli prófað allt sem viðkemur tónlist, spilað með ólíkum tónlistarmönnum og flutt allt frá hörðu rokki upp í tilfinningaþrungna klassík. Fyrir nokkru rann upp fyrir honum að hann hafði aldrei prófað trúbadorstílinn.
Hann fór að koma fram einn síns liðs með gítarinn í hönd við góðar undirtektir.
Miðaverð er kr. 2.000. Miðasala við innganginn.