Gunnar Marel og Paddý´s hljóta Súluna
Gunnar Marel Eggertsson og veitingastaðurinn Paddy´s eru handhafar Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar fyrir árið 2010. Verðlaunin voru afhent í Listasal Duushúsa í gær á Degi íslenskrar tungu.
Gunnar Marel Eggertsson hlaut Súluna í ár fyrir smíðina á víkingaskipinu Íslendingi, siglinguna til Ameríku og þátttöku sína við uppbyggingu Víkingaheima í Reykjanesbæ.
„Víkingaskipið Íslendingur var smíðað á árunum 1994 til 1996 og er eftirgerð Gaukstaðaskipsins sem fannst í Noregi árið 1882. Gunnar Marel sá alfarið um smíðina og árið 2000 stýrði hann síðan skipi sínu vestur um haf, í kjölfar Leifs Eiríkssonar. Segja má að þessi skip hafi verið þotur víkingatímans þar sem þau gátu farið mjög hratt yfir. Dæmi eru um að menn hafi aðeins notað 3-4 daga á leiðinni milli Íslands og Noregs. Þetta hefur síðan sannast í þeim leiðöngrum sem Íslendingur hefur farið. Lagt var af stað frá Reykjavík á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga 17. júní árið 2000 og komið til New York 5. október sama ár. Komið var við í 25 höfnum en vegalengdin sem Íslendingur sigldi í þessari ferð var um 4200 mílur. Í hverri höfn sem Íslendingur kom var mikið um að vera. Fjöldi manns tók á móti skipinu þar voru líka þjóðhöfðingjar og annað fyrirfólk og talið er að um 350.000 manns hafi komið um borð í Íslending í þeim höfnum sem heimsóttar voru. Níu árum eftir að Gunnar sigldi af stað í frægðarför sína, þann 17. júní árið 2009, var opnuð sýning um skipið og sögu þess í glæsilegri nýbyggingu; Víkingaheimum. Þar geta gestir skoðaða skipið og einnig hluta af frægri víkingasýningu Smithsonian stofnunarinnar í Bandaríkjunum sem var einmitt opnuð árið 2000 til að minnast landafunda Leifs Eiríkssonar. Gunnar Marel tók virkan þátt í uppbyggingu Víkingaheima og fyrir þá vinnu, smíði skipsins og siglinguna sjálfa, vill Reykjanesbær þakka honum með Súlunni í ár,“ segir í umsögn frá Reykjanesbæ um verðlaunin.
Veitingastaðurinn Paddy''s hlaut fyrirækjasúluna í ár fyrir eflingu tónlistarlífs í Reykjanesbæ með því að skapa ungu tónlistarfólki tækifæri til flutnings tónlistar.
„Frá stofnun Paddy''s hafa eigendur staðarins lagt áherslu á lifandi tónlist og þeir ásamt ýmsum ráðgjöfum hafa skipulagt tónleika og aðra menningarviðburði. Þetta hefur verið unnið af hugsjón, áhuga og ástríðu til listarinnar og oftast í sjálfboðavinnu. Markmið fyrirtækisins og þeirra listrænu ráðgjafa hefur verið að skapa vettvang fyrir listafólk til að koma sköpun sinni á framfæri. Margir tónlistarmenn hafa stigið sín fyrstu skref á þeim vettvangi og má þar nefna systkinin úr KlassArt sem allir landsmenn þekkja í dag. Tónleikarnir á Paddy´s hafa verið haldnir með tvennt að leiðarljósi. Að gefa ungum og upprennandi hljómsveitum á Suðurnesjum tækifæri til að koma fram og bjóða hljómsveitum af höfuðborgarsvæðinu sem og annars staðar frá, til tónlistarunnenda í Reykjanesbæ. Ýmsar hátíðir hafa verið haldnar s.s. Aftan Rokk, Aftan Festival og Rockville Hátíðin sem fyrst var haldin aftur árið 2005 en hefur síðan verið Ljósanæturhelgina en síðan verið haldin árlega. Á þessum ýmsu tónleikaröðum á Paddy''s hafa verið atriði sem spanna alla flóru tónlistar, allt frá því að vera þjóðlegur kórsöngur til argasta rokks. Skipuleggjendur tónleikahalds á Paddy''s hafa alltaf lagt áherslu á að vera með puttann á púlsinum og færa tónlistarunnendum nýjar og ferskar hljómsveitir. Margar landsþekktar rokkhljómsveitir hafa komið fram á hátíðinni á Paddy´s og yfirleitt á þeim tíma sem þær eru á jaðri þess að verða landsþekktar. Þar að auki hafa margar ungar hljómsveitir úr Reykjanesbæ komið fram á hátíðinni og sumar jafnvel konar í „áskrift", segir í umsögn um Paddy´s
Efri mynd: Gunnar Marel Eggertsson tók við Súlunni að viðstöddu fjölmenni í Listasafni Reykjanesbæjar í gær.
Neðri mynd: Björk Þorsteinsdóttir, formaður menningarráðs, fulltrúar Paddy´s þau Hallbjörn V. Rúnarsson og Eygló Eiríksdóttir, og Árni Sigfússon bæjarstjóri.