Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Gummi Steinars er gikkur en Magnús Þór elskar pungana
Mánudagur 9. janúar 2012 kl. 10:40

Gummi Steinars er gikkur en Magnús Þór elskar pungana

Nú þegar jólin eru að renna sitt skeið styttist í að þorrinn banki á dyrnar með allri sinni þjóðlegu dýrð og dýrslegu veigum. Keflvíkingar þjófstarta þorranum þetta árið laugardaginn 14. janúar með glæsilegu þorrablóti sem haldið verður í íþróttahúsi Keflavíkur við Sunnubraut. Mörgum kann að þykja þorrablótið heldur snemma á ferðinni en í fyrri tíð, eða fyrir árið 1700, þegar notast var við júlískt tímatal kennt við Júlíus Caesar, hófst þorrinn einmitt í kringum 9. til 15. janúar. Má því segja að Keflvíkingar séu að hefja gamla tímann upp um nokkrar hæðir þetta árið. Á boðstólum verður ljúffengur og vandaður þjóðlegur matur og drykkir ásamt glæsilegri dagskrá. Gikkirnir þurfa þó engu að kvíða því þeir sem ekki þora að leggja hinn þjóðlega þorramat sér til munns eiga kost á því að fá sér „hefðbundnari“ rétti og geta því mætt og skemmt sér með hinum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildir félagsins standa sameiginlega að þorrablótinu í ár en áætlað er að um árlegan viðburð verði að ræða. Leikmenn beggja deilda munu fjölmenna á þorrablótið og fullvissa markamaskínan Guðmundur Steinarsson og stórskyttan Magnús Þór Gunnarsson alla Keflvíkinga um að kvöldið verði hin mesta skemmtun. „Það var mikið stuð í fyrra á þorrablótinu hjá körfunni og býst ég við enn meiri skemmtun í ár. Ég ætla bara að vona að sem flestir sjái sér fært að mæta til að skemmta sér og borða frábæran mat“, segir Magnús Þór. „Þegar stuðningsmenn fótboltans og körfuboltans koma saman er alltaf fjör“, segir Guðmundur sem kveðst þó sjálfur borða takmarkað af þorramat. „Það er eitt og annað sem maður setur ofan í sig af þessu. Það er þó fínt að þetta sé bara einu sinni á ári“, segir Guðmundur.

Magnús Þór er ekki á sama máli og kveðst aðspurður mikill aðdáandi þorrans. „Auðvitað borða ég þorramat. Ég var alinn upp við að borða þorramat og afi kom mér t.d. upp á lagið við að borða hákarl og þá kom mamma mér upp á lagið við að borða súra hrútspunga. Ég á erfitt með að gera upp á milli einstakra rétta en ætli mér finnist ekki hrútspungarnir bestir“. Aðspurður kveðst Magnús Þór vita að Guðmundur Steinarsson sé rosalegur gikkur en hann ætti þó langt í land með að vera jafn mikill gikkur og frændi sinn og samherji Hafliði Már Brynjarsson. „Hann étur bara pizzu eins og hinir ungu pungarnir“.

Guðmundur hefur talsverða trú á því að ungu leikmennirnir í fótboltaliðinu taki vel til matarins um kvöldið og segist hann hafa ofurtrú á Ásgrími Rúnarssyni enda líti hann út fyrir að vera vel uppalinn piltur.

„Öðru máli gegnir hins vegar um Magnús Þór Magnússon, betur þekktan sem Magga Magg eða Maggi Gauju Magg enda er það yfir höfuð kraftaverk að hann borði yfir höfuð svo mikill gikkur er drengurinn“. Magnús Þór var spurður að því hvort erlendu leikmennirnir í körfunni myndu mæta og svaraði hann því játandi og kvað þá þegar orðna mjög spennta. „Við höfum verið að segja þeim að það sé skylda að smakka allt og þeir þykjast tilbúnir í það. Charles Parker er reyndar búinn að vera spenntur yfir þorramatnum alveg frá því að hann kom en hann hafði lesið sér til um þennan þjóðlega mat áður en hann kom og hefur t.d. spurt mikið út í það hvort menn borði virkilega andlitið af lömbunum“.

Þeir Magnús og Guðmundur voru að lokum spurðir að því hvort leikmenn körfunnar eða fótboltans myndu taka betur til matarins á þorrablótinu og var hart skotið í báðar áttir. Guðmundur kvaðst handviss að þar hefðu leikmenn fótboltans vinninginn. „Ég held að það sé ekki spurning að við munum borða meira af þorramat en körfuboltastrákarnir, nema það verði þorrasnakk á boðstólum, þá gæti Maggi Gunn bjargað andliti körfunnar“. Magnús Þór var hins vegar á allt öðru máli og skaut hart til baka;

„Ég er nú ansi hræddur um að karfan vinni þetta eins og alltaf þegar þessi tvö lið mætast. Ætli þeir séu ekki allir eins og Gummi Steinars en hann er mesti gikkur sem ég hef kynnst á ævinni. Við höfum verið saman í allnokkrum matarboðum og það er hreinlega fagnað í þeim boðum ef Gummi borðar matinn sinn. Bara af þeirri ástæðu skil ég ekki hvernig maðurinn getur alltaf verið í svona lélegu formi“.

Eins og áður hefur verið komið inn á verður dagskráin öll hin glæsilegasta og eru hún að öllu leyti úr heimabyggð. Veislustjóri kvöldsins verður sjentilmennið og fyrrverandi blaðamaður Víkurfrétta Jón Björn Ólafsson. Hljómsveitin Eldar mun taka fáein lög en hljómsveitina skipa m.a. Keflvíkingarnir Valdimar Guðmundsson og Björgvín Ívar Baldursson. Gestum verður boðið í sjóðandi heita U2 messu þar sem kór Keflavíkurkirkju mun syngja lög eftir hljómsveitina U2. Stjórnandi messunnar er Arnór Vilbergsson, organisti Keflavíkurkirkju. Þá verður fluttur sérstakur Keflavíkurannáll þar sem stiklað verður á stóru í bæjar- og íþróttalífi Keflavíkur árið 2011 með kómískum hætti. Kvöldinu verður svo skotið upp með ekta „Bergás“ 80´s balli að formlegri dagskrá lokinni og verður það enginn annar en sjálfur Alli „diskó“ sem mun sjá um að þeyta skífum fram á nótt.

Miðasala er þegar hafin og hefur gengið vel. Ljóst er að miðaverð er með því ódýrara sem gerist, eða aðeins 5900 kr. Er það mál manna að hér sé um gjöf en ekki gjald að ræða. Er þeim sem ekki hafa tryggt sér miða bent á að hafa samband við Einar Haraldsson, framkvæmdastjóra Keflavíkur, í síma 897-5204 eða Sævar Sævarsson í síma 869-1926.