Gullpensillinn sýnir í Listasafni Reykjanesbæjar

Að þessu sinni er það hópurinn Gullpensillinn sem sýnir og verður sýningin opin alla daga frá 13.00-17.00 og stendur til 8. desember.Síðustu samsýningar hópsins voru í Berlín í júlí 2001 og Þórshöfn í Færeyjum í ágúst 2001. Í nafni Gullpensilsins sýna eftirtaldir listamenn: Birgir Snæbjörn Birgisson, Daði Guðbjörnsson, Eggert Pétursson, Georg Guðni Hauksson, Hallgrímur Helgason, Helgi Þorgils Friðjónsson, Inga Þórey Jóhannsdóttir, Jóhann Ludwig Torfason, Jón B.K. Ransu, Kristín Gunnlaugsdóttir, Sigríður Óalfsdóttir, Sigtryggur Bjarni Baldvinsson, Sigurður Árni Sigurðsson og Þorri Hringsson.