Bygg
Bygg

Mannlíf

Fimmtudagur 19. júlí 2001 kl. 09:49

Gulla Olsen málar á næturnar

Síðastliðinn laugardag var opnuð sýning á málverkum Gullu Olsen í Gallerý Hringlist við Hafnargötu. Sýningin stendur út júlí.
Gulla byrjaði að mála fyrir rúmum 3 árum en hún er algjörlega sjálflærð en á þó ekki langt að sækja hæfileikana, bæði móðir Gullu og afi eru mjög listræn. „Vinkona mín keypti sér íbúð fyrir þrem árum og bað mig um að mála myndir á veggina fyrir sig. Ég sló til þó ég hefði mest verið að dunda mér með blýantinn“, segir Gulla sem hefur alla tíð teiknað mikið og á því ágætt safn blýantsmynda. Myndir Gullu eru bæði vatnslitamyndir og akrýlmyndir og hafa verið til sölu í Hringlist í tvö ár. Flestar myndirnar verða til á nóttu en Gulla er tveggja barna móðir auk þess sem hún stundar háskólanám.
Bílakjarninn
Bílakjarninn