Guðný Kristjánsdóttir stofnsetur nýtt fyrirtæki: Gargandi snilld
Gargandi snilld er heiti á fyrirtæki sem Guðný Kristjándóttir í Reykjanesbæ hefur stofnsett. Fyrirtækinu er ætlað að standa að námskeiðum í leiklist, söng og tjáningu fyrir krakka á aldrinum 8-12 ára, Markmiðið er að efla sjálfstraust, almenna framkomu og sköpunargleði barnanna. Með stofnuna Gargandi snilldar er Guðný að láta gamlan draum rætast en hún er mikil áhugamannesja um leiklist og vel kunn af áralöngu starfi sínu með Leikfélagi Keflavíkur.
Guðný hefur kennt leiklist í Heiðarskóla í nokkur ár, vera um árbil virkur þátttakandi í starfi LK og sótt fjölda námskeiða á þessu sviði. Hún býr því að mikilli reynslu sem mun eflaust nýtast vel nýtast á námskeiðunum.
„Fólk hefur oft verið að spyrja um slík námskeið þannig að eftirspurnin er fyrir hendi. Það, í bland við kennsluna í Heiðarskóla og ótakmarkaðan áhuga á þessu sviði, var kveikjan að þessu en segja má að ég sé að láta gamlan draum rætast,“ svarar Guðný aðspurð hvers vegna hún sé að stofna fyrirtæki, svona í miðri kreppunni.
Í Gargandi snilld ætlar Guðný að leiðbeina áhugasömum krökkum í leiklist, söng og tjáningu með það að markmiði að efla sjálfstraust, almenna framkomu og sköpunargleði. Kennslan byggist aðallega á leiklistaræfingum, léttum leikjum og hópefli en einnig verður lögð mikil áhersla á undirstöðuatriði í söng, raddbeitingu, framkomu á sviði, notkun hljóðnema og fleira.
„Með þessum námskeiðum er kominn nýr valmöguleiki fyrir þann hóp barna sem ekki finnur sig í íþróttum. Það er nokkur stór hópur barna sem finnur sig frekar í skapandi tómstundaiðkun, s.s. hljóðfæraleik, söng og leiklist. Gargandi snilld höfðar því vel til þessa hóps,“ segir Guðný sem vonar að að námskeiðin muni einnig geta af sér framtíðarleikara í Leikfélagi Keflavíkur.
„Ég vinn þetta í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur en kennsla fer fram í Frumleikhúsinu við Vesturbraut. Það er auðvitað um að gera að nýta þessa góðu aðstöðu sem þar er,“ bætur hún við.
Kennt verður á miðvikudögum, klukkutíma í senn, samtals í 8 vikur og er takmarkaður fjöldi á hvert námskeið tíu nemendur. Guðný segir að með því sé betur hægt að mæta þörfum hvers og eins þátttakenda.
Einn tími fer í að syngja lag inn á geisladisk í alvöru hljóðveri og fá þátttakendur að sjálfsögðu disk með sínu lagi til eignar. Í lok námskeiðsins verður svo uppákoma þar sem nemendur koma fram og sýna afrakstur námskeiðsins fyrir nánustu aðstandendur.
Guðný segir að ef vel gangi verði haldin fleiri námskeið eftir áramót og þá fyrir breiðari aldurshóp. Fyrstu námskeiðin byrja í næstu viku en nánari upplýsingar um tímasetningar og annað má finna í auglýsingu í VF. Námskeiðið er unnið í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur og fer kennsla fram í Frumleikhúsinu, Vesturbraut 17, þar sem aðstæður eru mjög góðar og allt til staðar.