Guðni kynnir Hallgerði í MSS
Fimmtudaginn 11. desember kl. 11:00 mun Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, MSS, skapa aðventustemningu og fá bókarhöfund í heimsókn með bókakynningu Guðni Ágústsson gaf nýverið út bókina Hallgerður, en bókin hefur notið mikilla vinsælda og fyrsta upplag seldist upp á skömmum tíma.
Forlagið, útgáfa hefur þetta að segja um bókina: „Stórfengleg og skemmtileg bók þar sem Guðni Ágústsson kemur Hallgerði langbrók til varnar. Hér sýnir sögumaðurinn Guðni á sér nýjar og óvæntar hliðar með frábærum flutningi og góðri sögu“.
Það væri ánægjulegt að fá sem flesta til að taka þátt í heimsókn Guðna og tilvalið að taka frí frá verkefnum dagsins á aðventunni og njóta bókamenningar, segir í frétt frá MSS. Guðni mun kynna og lesa úr bók sinni um Hallgerði fimmtudaginn 11. Desember kl 11:00. Öllum frjálst að koma á meðan húsrúm leyfir.