Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Guðni afhjúpaði lágmynd á 94. afmælisdeginum
Guðni afhjúpar lágmyndina. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Föstudagur 5. janúar 2018 kl. 10:07

Guðni afhjúpaði lágmynd á 94. afmælisdeginum

Guðni Ingimundarson, heiðursborgari Sveitarfélagsins Garðs, afhjúpaði daginn fyrir gamlársdag lágmynd sem Ragnhildur Stefánsdóttir myndhöggvari gerði af honum. Lágmyndin er staðsett í húsnæði bæjarskrifstofunnar í Garði við hlið lágmynda af Sigrúnu Oddsdóttur og Birni Finnbogasyni, sem einnig hafa haft nafnbótina „heiðursborgari í Garði“. 
 
Guðni fagnaði þennan dag, 30. desember sl., 94 ára afmæli sínu og voru börn hans og afkomendur viðstödd athöfnina þegar lágmyndin var afhjúpuð.
 
Þann 3. mars 2004 var fyrsti fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Garðs. Í tilefni þess að liðin eru 10 ár frá fyrsta fundi bæjarstjórnar samþykkti bæjarstjórn á fundi sínum þann 5. mars 2014 að útnefna Guðna Ingimundarson heiðursborgara Sveitarfélagsins Garðs. Tillaga þess efnis var lögð fram af öllum bæjarfulltrúum í bæjarstjórn.
 
Guðni Ingimundarson var kjörinn heiðursborgari Sveitarfélagsins Garðs fyrir frumkvöðlastarf hans við varðveislu menningarverðmæta sem tengjast atvinnusögunni, sem og fyrir störf hans í þágu byggða-og atvinnumála.

 
Guðni var alla sína starfsævi vörubílstjóri. Árið 1954 var hann fenginn til að leggja vatnsveitu í Garði. Til þess að vinna verkið festi hann kaup á GMC hertrukk með bómu að framan. Guðni ætlaði sér að nota trukkinn í þetta eina verkefni, en það fór svo að trukkurinn varð hans aðal atvinnutæki í um 50 ár. Guðni og trukkurinn leystu mörg verkefni í Garði og fóru auk þess víða um Suðurnes til að vinna að margvíslegum verkefnum.  Fyrir vikið er Guðni vel þekktur meðal Suðurnesjamanna og gjarnan er talað um Guðna og trukkinn samtímis.
 
Guðni hefur gegnum tíðina safnað á annað hundrað bátavéla, gert þær upp sem nýjar og gangfærar. Elsta vélin er frá því um 1920. Þegar Byggðasafnið á Garðskaga var vígt þann 2. júlí 2005 afhenti Guðni safninu að gjöf og til varðveislu 60 gangfærar bátavélar, auk þess sem hann gaf safninu GMC trukkinn sinn fræga. Auk þessara véla á Guðni um 40 uppgerðar og gangfærar vélar í skúrnum hjá sér að Borgartúni í Garði, þar sem Guðni býr í dag. Guðni er því sannur frumkvöðull við varðveislu menningarverðmæta sem tengjast atvinnusögunni og er vélasafnið sem hann hefur safnað og gert upp einstakt, ekki aðeins á Íslandi heldur þótt víðar væri leitað.
 
Guðni fæddist að Garðstöðum í Garði þann 30. desember 1923 og varð því 94 ára þann 30. desember sl. Eiginkona hans var Ágústa Sigurðardóttir frá Ásgarði á Miðnesi en hún lést 2016. Börn þeirra eru Sigurjóna, Ingimundur og Árni, sem öll eru búsett í Garði.

 
Guðni ásamt börnum sínum. Frá vinstri: Ingimundur, Sigurjóna, Guðni og Árni.

 
Ragnhildur Stefánsdóttir myndhöggvari ásamt Magnúsi Stefánssyni bæjarstjóra í Garði og Einari Jóni Pálssyni, forseta bæjarstjórnar Garðs.

 
 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024