Grunnskólinn í Sandgerði fær heimsókn frá Íslenska dansflokknum
				
Það ætlar seint að ganga fyrir Ólaf Þór Ólafsson bæjarfulltrúa Þ-lista í Sandgerðisbæ að fá seturétt í bæjarráði. Þrisvar sinnum hefur tillaga verið lögð fram þess efnis að Ólafur fái seturétt í ráðinu, en í öll skipti hefur tillagan verið felld af meirihluta bæjarstjórnar.
Maður sem þekkir vel til stjórnsýslu sveitarfélaga á landinu sagði í samtali við Svart & Sykurlaust að það væri vel þekkt að bæjarfulltrúar fengju seturétt í bæjarráði. En svo virðist sem meirihluti bæjarstjórnar vilji alls ekki sjá Ólaf Þór í ráðinu. Gárungarnir í Sandgerði segja að kveikiþráðurinn sé ansi stuttur í meirihlutanum gagnvart minnihlutanum. Er pólitíkin ekki stundum skrýtin?