HSS
HSS

Mannlíf

Grunnskólastarf gegn einelti í dag
Föstudagur 8. nóvember 2013 kl. 09:47

Grunnskólastarf gegn einelti í dag

Dagurinn í dag, 8. nóvember, er helgaður baráttunni gegn einelti í samfélaginu. Víða í grunnskólum landsins er hefðbundið skólastarf brotið upp, verkefni gerð og umræða efld um þetta þarfa málefni sem snertir okkur öll.

Í Njarðvíkurskóla er þemadagskrá fram að hádegi í öllum bekkjum. Þar er áherslan lögð á forvarnastarf í nafni vináttudags og áhersla lögð á að efla vináttu og jákvæð samskipti. Nemendur í yngri deildum útbúa vináttubönd og elstu nemendur hlusta á fyrirlestur Hafþórs Birgissonar um neteinelti og hættur internetsins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Í Grindavík hefur dagskráin verið undirbúin í samstarfi við forvarnarnefnd UMFG. Þar hittast vinabekkir og Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur mætir á sal. Undir lok dagskrár munu nemendur ganga í lögreglufylgd frá Skólabraut upp Arnarhraun að skóla. Þar myndaður hringur utan um skólann af nemendum og öllu starfsfólki skólans.

Í Holtaskóla er vakin athygli á og umræða um það sem oftast eru ástæður eineltis, eins og fordómar og stríðni. Nemendur klippa út hjörtu, skrifa á þau stök orð hengja síðan á kærleikstré sem eru við skólann. Í skólanum verður svo þemavinna út frá þessu á næstunni. Umræðan einskorðast því ekki við daginn í dag.