Bygg
Bygg

Mannlíf

Grunnskólanemar í umhverfisverkefni
Föstudagur 27. apríl 2007 kl. 12:08

Grunnskólanemar í umhverfisverkefni

Reykjanesbær hefur efnt til samkeppni meðal nemenda í grunnskólum bæjarins um myndverk og/eða slagorð til að efla umhvefisvitund bæjarbúa. Um er að ræða myndverk og/eða slagorð sem hvetja bæjarbúa til að ganga vel um. Myndverkinu þarf að skila í stærð A5 en að öðru leyti hafa þátttakendur frjálsar hendur með útfærslu.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú myndverk og þrjú slagorð. Fyrirhugað er að nota verðlaunaverkin til að koma á framfæri hvatningu til bæjarbúa um bætt umhverfi og hreinni bæ. Reykjanesbær áskilur sér rétt til að nota verðlaunahugmyndirnar í margs konar tilgangi til að gera Reykjanesbæ að fyrirmyndarbæ. Hugmyndum þarf að skila inn fyrir 5. maí n.k. til Reykjaensbæjar, Tjarnargötu 12.

 

Einnig er hægt að senda þær á netfangið: [email protected]. Hugmyndirnar eiga að vera merktar dulnefni en rétt nafn höfundar á að fylgja með í lokuðu umslagi.  Dómnefnd skipa Sigríður Jóna Jóhannesdóttir, Guðbjörg Sveinsdóttir og Valgerður Guðmundsdóttir. Verðlaunaafhending fer fram á íbúafundi Reykjanesbæjar með grunnskólanemum þann 23. maí n.k.

 


Af vefsíðu Reykjanesbæjar

Bílakjarninn
Bílakjarninn