Gróa Hreins: Sex messur, brúðkaup og tónleikar
Tónlistarkonan Gróa Hreinsdóttir hefur í nógu að snúast um páskana. Hún mun spila í fjölda messa, í brúðkaupi og á tónleikum. Veturinn hefur einnig verið annríkur hjá Gróu.
- Hvernig á að verja páskunum?
„Yfir hátíðisdagana spila ég við sex messur, eitt brúðkaup og eina tónleika. Þess á milli verð ég heima.“.
- Gefur þú mörg páskaegg eða færðu mörg egg?
„Ég er búin að fá eitt páskaegg pínulítið og gef tvö - nei, þrjú, því ég er orðin amma!“.
- Hvað á að gera skemmtilegt í sumar?
„Í sumar ætla ég að VERA skemmtileg“.
- Á að ferðast innanlands eða utan?
„Hver hefur efni á að ferðast?“.
- Hvernig sumar fáum við?
„Vonandi fá allir gleðilegt sumar“.
- Hvað hefur þú verið að gera í vetur?
„ Í vetur hef ég unnið og unnið og unnið“.
- Hvernig hefur veturinn verið hjá þér? Næg verkefni?
„Veturinn var góður og annasamur. Hef stjórnað sex kórum og spilað með nokkrum. Hlakka til Landsmóts Kvennakóra sem verður á Selfossi í lok apríl,“ segir Gróa Hreinsdóttir.