Grindavík: Menningarvika í fyrsta skipti
Í fyrsta skipti í sögu Grindavíkur verður haldin menningarvika sem stendur vikuna 21. til 28. mars nk. Að sögn Kristins J. Reimarssonar, frístunda- og menningarfulltrúa Grindavíkur, var lagt upp með að virkja sem flesta Grindvíkinga sem með einum eða öðrum hætti koma að menningu hvaða nafni sem hún nefnist og reynt að höfða til allra aldurshópa. „Það eru fjölmargir Grindvíkingar sem eru í myndlist, tónlist og ýmis konar handverki í sínum frístundum og við erum að reyna draga þá fram í dagsljósið. "
Óhætt er að segja að dagskráin sé afar fjölbreytt og fyrir allan aldur en formleg opnun verður í Saltfisksetrinu laugardaginn 21. mars. Þar verður opnuð samsýning grindvískra frístundamálara og handverkssýning. Síðan rekur hver viðburðurinn annan í Kvennó, Flagghúsinu, Grindavíkurkirkju og á fleiri stöðum í bænum. Meðal viðburða má nefna Kaldalónskvöld, kaffihúsakvöld, ljósmyndasýning barna, ljóðasýning, fjöltefli, frumsýning á árshátíðarleikriti grunnskólans, þjóðháttakynning, Rokksuð, Kúttmagakvöld, kvennakvöld hjá körfunni, tónleikar í kirkjunni, vígsla fjölnota íþróttahúss og þá koma rithöfundarnir Guðbergur Bergsson og Einar Már og mun sá síðarnefndi fjalla um verk Guðbergs. Bæjarfulltrúar mæta hver á fætur öðrum í pottaspjall í sundlauginni og spjalla við gesti um málefni líðandi stundar.
„Hugmyndin að menningarvikunni kviknaði þegar ég fékk sl. haust í hendur dagskrá Vökudaga á Akranesi sem er menningarveisla þeirra Skagamanna. Þá spurði ég mig einfaldlega þeirrar spurningar hvort við gætum ekki líka útfært svona viku hér í Grindavík. Eftir að hafa ráðfært mig við menningarnefnd Grindavíkur var niðurstaðan sú að reyna koma menningarviku á laggirnar á vormánuðum og tengja hana við uppákomur í tengslum við árshátíð grunnskólans. Lagt var upp með það að virkja sem flesta Grindvíkinga sem með einum eða öðrum hætti koma að menningu hvaða nafni sem hún nefnist og reynt að höfða til allra aldurshópa. Það eru fjölmargir Grindvíkingar sem eru í myndlist, tónlist og ýmiskonar handverki í sínum frístundum og við erum að reyna draga þá fram í sviðsljósið,“ að sögn Kristins.
Leitað var til bæjarbúa eftir hugmyndum og atriðum og gekk það vel. Kristinn segir að fólk sé jákvætt og þeir sem leitað hefur verið til hafa allir tekið vel í það að vera með. Einnig hafa aðilar innan Grindavík Experience sem eru regnhlífarsamtök ferðaþjónustuaðila í Grindavík ákveðið að tengjast þessari viku og ætla að vera með ýmis tilboð til heimamanna í tilefni vikunnar.
„ Við rennum svolítið blint í sjóinn með þetta. Með því að virkja heimamenn líkt og við erum að gera þá höfum við fulla trú á því að þetta eigi eftir að verða viðburðarrík vika og Grindvíkingar verði virkir. Okkar markmið er líka að byrja ekki of stórt með svona viðburð heldur byrja með eitthvað sem við ráðum auðveldlega við og byggja svo ofan á það að ári því markmiðið er að gera þetta að árlegum viðburði. Ég hvet alla Grindvíkinga til að kynna sér dagskrána vel þegar hún kemur í hús og vera svo duglegir að taka þátt . Að gera sér glaðan dag og fara út á meðal fólks skiptir miklu máli og samfélagið verður bæði líflegra og skemmtilegra eftir því sem fleiri taka þátt,“ sagði Kristinn jafnframt.