Grindavík: Bæjarstjórinn í heita pottinum
Petrína Baldursdóttir bæjarfulltrúi mætir í heita pottinn á morgun, miðvikudag, Björn Haraldsson á fimmtudaginn og Sigmar Eðvardsson á föstudaginn. Rétt er að ítreka að bæjarfulltrúarnir mæta kl. 7.30, eða hálftíma fyrr en auglýst var áður.
Dagskráin í dag, þriðjudag, í menningarviku Grindavíkur, er stór og mikil:
Kl. 14:30 - Tónleikar.
Friðarliljurnar frá Rauða krossinum í Grindavík verða með tónleika í Víðihlíð. Allir velkomnir.
Kl. 16:30 - Ýkt kominn yfir þig.
Frumsýning á leikriti grunnskólans. (Nemendasýning). Leikritið Ýkt kominn yfir þig fjallar um foringja í stelpu- og strákagengjum sem eru kærustupar. Foringinn í stelpugenginu segir öllum stelpunum í sínu gengi að hætta með kærustunum sínum vegna þess að þær stefna á það að verða frægar. Strákarnir í strákagenginu voru ekki sáttir við þetta og ákveða að hefna sín á stelpunum og í kjölfarið hefst ótrúleg atburðarrás.
Leikstjóri er Víðir Guðmundsson og með helstu hlutverk fara; Telma Sif Reynisdóttir, Kjartan Helgi Steinþórsson, Róshildur Björnsdóttir, Bjarni Þórarinn Hallfreðsson, Sara Hrund Helgadóttir, Einar Ómar Eyjólfsson, Hanna Dís Gestsdóttir og Axel Þór Bergmann.
Þess má geta að bæjarsýningar verða bæði miðvikudags- og fimmtudagskvöld kl. 20.
Kl. 20:00 - Árshátíð grunnskólans.
Hljómsveitin Á móti sól leikur fyrir dansi.
Kl. 20:00 - Prjónakaffi í Flagghúsinu.
„Lærið að prjóna," Erla Eggertsdóttir kynnir bókina.
„Garn á prjónana," Linda í Palómu.
Texti og mynd af www.grindavik.is