Bygg
Bygg

Mannlíf

Föstudagur 8. nóvember 2002 kl. 15:57

Grindavík: Afmæli tónlistarskólans fagnað

Nú í haust eru 30 ár liðin frá stofnun Tónlistarskólans í Grindavík. Í tilefni þess verður opið hús í skólanum fimmtudaginn 14. nóvember og föstudaginn 15. nóvember. Kennarar og nemendur skólans bjóða fólk velkomið að kíkja inn, fylgjast með kennslu og fræðast um starfsemi skólans.Laugardaginn 16. nóvember verða haldnir afmælistónleikar í Grindavíkurkirkju þar sem fram koma bæði nemendur og kennarar og hefjast þeir kl. 16:30. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Kaffiveitingar í hléi til styrktar Barnakór tónlistarskólans.
Bílakjarninn
Bílakjarninn