Bygg
Bygg

Mannlíf

GRAL frumsýnir 15. nóvember
Fimmtudagur 6. nóvember 2008 kl. 13:28

GRAL frumsýnir 15. nóvember



Grindavíska atvinnuleikhúsið, GRAL, undirbýr þessa dagana frumsýningu á verkinu 21. manns saknað en hún verður laugardaginn 15. nóvember. Nokkur eftirvænting er fyrir þessu fyrsta verkefni GRAL og uppselt er á frumsýninguna. Sýningar fara fram í listasal Salfisksetursins í Grindavík.


Verkið er einleikur byggður á æfi séra Odds V. Gíslasonar og fer Víðir Guðmundsson með hlutverkið. Víðir segir verkið eitt það mest krefjandi sem hann hafi tekið sér fyrir hendur.

„Það er mikið spurt hvenær sýningar hefjast þannig að mér sýnist fólk vera spennt fyrir þessu án þess að við séum byrjaðir að auglýsa sýningarnar sérstaklega en það stendur til á næstunni. Við eru því vongóðir um góðar undirtektir,“ segir Víðir. Búið er að raða niður sýningum fram að áramótum og ef undirtektir verða góðar er ráðgert að hafa fleiri eftir áramót. Einnig hefur náðst samstarfssamningur við Grindavíkurbæ um að fara með sýningar inn í grunnskólana, að sögn Víðis.

Aðspurður segir Víðir verkið mjög krefjandi enda um einleik að ræða. Víðir þarf því að bregða sér í ýmis hlutverk og bera uppi sýninguna allan tímann. „Mér er óhætt að segja að þetta sé með mest krefjandi verkefnum sem ég hef takið mér fyrir hendur,“ segir Víðir.

Leikverkið 21. manns saknað er um þjóðsagnakennda ævi séra Odds V. Gíslasonar og þeim framúrstefnulegum verkefnum hann tók sér fyrir hendur. Má þar nefna lýsisbræðslu í Höfnum, brennisteinsnámuvinnslu í Krýsuvík, kolanámuvinnu við Hreðavatn, baráttunni við fátæktina og Bakkus, segir í sýningarskrá. Oddur er einnig kunnur af því að hafa lagt grunninn að slysavörnum á Íslandi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn