GRAL fékk tilnefningu til Grímunnar
Grindvíska atvinnuleikhúsið GRAL hefur hlotið tilnefningu til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna. Forseti Íslands tilkynnti í Borgarleikhúsinu fyrir helgi hverjir höfðu hlotið tilnefningu.
GRAL fær tilnefningu fyrir leikskáld ársins og veittu Bergur Þór Ingólfsson, Guðmundur Brynjólfsson og Víðir Guðmundsson viðurkenningunni viðtöku.
Einnig hlaut Bergur tilnefningar fyrir leik í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í Dauðasyndunum, leik í aukahlutverki í Milljarðamærinni, leikstjórn útvarpsleikritsins Yfirvofandi og sem leikskáld ársins ásamt leikhópnum í Dauðasyndunum.
Næsta verkefni GRAL í Grindavík er barnaleikritið Horn á höfði sem verður frumsýnt í september.
-----
VFmynd/elg - Myndin var tekin í haust þegar GRAL og Grindavíkurbær skrifuðu undir samstarfssamning.