Gott veður og skemmtileg ferðalög
„Ég get nú ekki sagt að ég strengi nein áramótaheit en áramótin eru góður tími til að staldra við og rifja upp árið og skoða væntingar sínar til nýja ársins. Það sem kemur fyrst upp í hugann þegar horft er til baka yfir árið 2009 er góða veðrið í sumar og skemmtileg ferðalög með fjölskyldunni,“ segir Laufey Erlendsdóttir, formaður bæjarráðs í Garði, um það sem henni er efst í huga eftir árið 2009.
„Það var síðan stór áfangi þegar skólastarf hófst í Gerðaskóla og teknar voru í notkun nýjar og glæsilegar kennslustofur og síðan var skólalóðin opnuð með frábærum nýjum leiktækjum. Þetta hefur verið mjög gott ár í Garðinum, mér finnst eins og það sé bara búið að vera logn allt árið. Mannlífið og menningin blómstrar, við héldum stórskemmtilega Sólseturshátið í júní, í frábæru veðri og það er alltaf eitthvað skemmtilegt á döfinni hjá okkur. Þjóðmálin eru auðvitað einnig ofarlega á baugi og hversu hægt þokast í þeim en þó finnst mér vert að minnast sérstaklega þeirrar breytingar sem hefur orðið á hugarfari fólks og forgangsröðun. Það hefur verið gaman að sjá hvað fólk hefur verið jákvætt þrátt fyrir erfitt ástand og tilbúið að horfa fram á við og nýta góðar hugmyndir til góðra verka.
Að lokum vil óska Garðmönnun og öðrum Suðurnesjamönnum hamingjuríks árs með þökk fyrir árið sem var að líða.“