Göngum menntaveginn: Gönguferð með leiðsögn
Gengið verður frá Skólavegi 1, húsnæði MSS, að Innri – Njarðvíkurkirkju.
Tími: Fimmtudagurinn 9. október kl. 18:00 – 21:00.
Mæting: húsnæði MSS, að Skólavegi 1 í Reykjanesbæ.
Rannveig Garðarsdóttir leiðsögumaður fer yfir skólasögu Keflavíkur og Njarðvíkur. Einhverjir skólamenn gætu orðið á vegi hópsins. Gangan tekur 2 klukkustundir og endar við minnismerki um Jón Þorkellsson (Thorkillius) í Innri – Njarðvík. Þaðan er tekinn strætó til baka að Skólavegi 1 þar sem léttar veitingar bíða þátttakenda.
Gönguferðin er í boði MSS. Nauðsynlegt er að skrá sig annað hvort á
www.mss.is eða í síma 421 7500.
Sjá nánar á www.mss.is og www.leidsogumenn.is