Bygg
Bygg

Mannlíf

Göngugarpar sáu gömul byrgi í hrauninu
Fimmtudagur 9. júlí 2015 kl. 13:22

Göngugarpar sáu gömul byrgi í hrauninu

Tilvera þeirra er á huldu, segir leiðsögumaður.

„Við gengum Brauðstíginn í gærkvöldi að litlum hlöðnum byrgjum sem leynast í hrauninu,“ segir Rannveig Lilja Garðarsdóttir, sem oftast er kölluð Nanný. Hún hefur stýrt vinsælum gönguferðum um Reykjanesið í mörg ár og segir göngu með hóp í gær frá Eldvörpum hafa verið sérlega áhugaverða vegna byrgjanna. Tilvera þeirra sé á huldu og margar tilgátur um hver hlóð þær og í hvaða tilgangi. „Meðal annars er talið að íbúar Grindavíkur hafi hlaðið þau til að eiga í þeim skjól eftir að þeir urðu fyrir árás Tyrkja árið 1627. Önnur tilgáta er að þau hafi verið notuð sem einskonar fiskbyrgi þar sem þau standa skammt frá gamalli þjóðleið sem lá á milli Staðarhverfis og Básenda. Sú þriðja tilgátan er að konur frá Grindavík hafi nýtt sér jarðhitann í Eldvörpum til að baka brauð og hafi þá hlaðið byrgin til að hafa skjól á meðan brauðið hefaðist og bakaðist,“ segir Nanný. 

Gengið var áfram að Húsatóttum þar sem krían tók á móti hópnum með tilheyrandi látum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Sjá fleiri myndir í myndasafni